Færsluflokkur: Tölvur og tækni

Hænan sagði "ekki ég"

Það er alveg með ólíkindum hvað allir eru að sverja af sér vitnestku eða ábyrgð.  Staðreindin er sú að það skiptir ekki máli hvað þeir vissu eða vissu ekki, Þeir áttu að vita þetta.  ef þeir vissu þetta ekki þá eru þeir ekki að vinna vinnuna sína og ef þeir vissu þá eru þeir óhæfir, en niðurstaðan er alltaf sú að þeir eru ábyrgir.  Þeir fá laun fyrir ábyrgð sem þeir bera á sínum málaflokki og á undirmönnum sínum.

Það eina að viti er að reka seðlabankastjórn og fá hæfa menn þar inn, reka svo stjórn of forustu FME og fá hæfa menn þar inn, sjúfa svo þing og setja þjóðstjórn og kjósa í kjölfarið ekki seinna en í vor en helst í jan eða feb.

Skipta út krónunni fyrir evru, helst með samþykki evrópusambandsins en jafnvel þó þeir samþykki það ekki, krónan er dauð og þeir einu sem vita það ekki eru forsætisráðherra og seðlabankastjóri.

Þetta ætti að vera öllu ljóst.


mbl.is Ráðherrarnir koma af fjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villa í Mogganum!!! jæja

ég horfði á þennan féttamanna fund og vill leiðrétta eitt sem fram kemur í þessari grein. 

þar stendur "Afgreiðslan taki hins vegar með flýtimeðferð fjórar til sex vikur og sé því ekki hluti af pakkanum nú með IMF. Geir sagði að fjármálaráðherra hafi upplýsingar um að ekki sé um háar fjárhæðir að ræða sem Íslendingar gætu fengið úr sjóðnum."

en forsætisráðherra sagð að flýtimeðferð tæki fjórir til sex mánuðir.  sjálfur hef ég ekki hugmynd um hvort er rétt.


mbl.is Geir staðfestir pólska aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilraun til manndráps af gáleysi

ef fullur maður sem keirir og drepur einhvern er sekur um manndráp af gáleysi, er þá ekki augljóst að ef maður keirir fullur þá er maður sekur um dilaun til manndráps af gáleysi, allavega ef maðurinn er verulega drukkinn.
mbl.is Árs fangelsi fyrir manndráp af gáleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villimenn

Ég á mágkonu sem er muslimi og er ekki á nokkurn á með kyþáttahatur í minu hjárta, þvert á móti finn ég mikið til með þessu fólki sem lifir í svona mikilli fávisku, þar er ég að meina ofsatrúarmenn, ekki venjulegan múslima, en lang flestir muslimar fordæma þessi lög og svona aðgerðir.  en að ljúga til með aldur og aðstæur til þess að geta hent steinum í hausinn á lítilli stelpu sem í raun er eina fórnalambið í málinu er algjörlega ófyrirgefanlegt.  Eg bara nona að þessir ofsatrúarmenn sjái af sér, en kristnir ofsatrúarmenn eru litlu betri, eða allavega voru þeir jafn slæmir fyrr á öldum. 

Og ef ég fer á einhvern aftöku lista í Teheran eða soudi arabíu fyrir að skrifa þetta þá verður bara svo að vera og það mun ekki særa mig mikið þar sem að ég myndi aldrei bjóða konu minni í ferðalag í þessi fangelsi sem þessi lönd eru fyrir konur.


mbl.is 13 ára grýtt fyrir nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldþrota bankamenn

ef þessir menn verða ekki gjaldþrota, vegna svona svakalegra skulda þá er eitthvað mikið að.  auðvita á ekki að fara um þá með silkihönskum á meðan hinn vejulegi borgari missir húsið sitt.  það er mikilvægt að þessir menn verði látnir mæta sínum skuldum, eftir allt þá voru lok þessara kaupréttasamnina þau að það myndi hvetja þá og verðlauna á meðan vel gengur, en gengur það ekki í báðar áttir, eiga þeir ekki að vera ábyrgir skuldum sínum og voru hlutafékaup þeirra áhættulaus.
mbl.is Lykilmenn skulduðu 80 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju ekki mínar skuldir

Ég skulda bankanum mínum einhverjar miljónir og ensog hjá svo mörgum öðrum eru afborganir af þessum lánum stór hluti útgjada minna, ég er að kláŕa nám í háskóla og sé ekki fram á að fá vinnu að námi loknu, þannig liggur við að ég er á leiðinni á hausin snemma á nýju ári.  Af hverju eru skuldir mína við bankann minn ekki feldar niður til að forða mér frá gjaldþroti, eru þessir menn, sem settu landið á hausinn, eitthvað betri en ég eða nágranni minn.  Ég bara spyr.  það er ekki einsog ég hafi fengið margar miljónir fyrir af falsa afkomutölur eða fella gengi krónunar einsog þessir mann hafa gert.
mbl.is FME hefur ekki samþykkt niðurfellingu skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hef mínar efasemdir

ég geri mer grein fyrir að það eru ansi fáar hurðir opnar fyrir okkur en ég treysti þessum sjóði ekki lengra heldur en ég get hent honum,  þar að auki eru líkur á að bretar setji skilirði í sjósstjórinni sem við getum aldrei fallist á og verðim því í verri aðstöðu eldur en við hefðum verið hefðum við ekkert lalað við þá.

svo fann ég þessa skemmtilegu umræðu um ísland á netinu http://www.abovetopsecret.com/forum/thread404629/pg1 .  ekki veit ég hvað er til í þessu en þetta er þó umhugsunarvert.


mbl.is Stjórn IMF fjallar um Ísland 5. nóvember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Láta á þetta reyna

Mér finnst um að gera að láta á þetta reyna, þó ekki væri nema bara til að sýna að það sé ekki hægt að eyðileggja hagkerfi heillar þjóðar með óvarlegum orðum og mis vitrum aðgerðum, einungis ætlaðar til að vinna sig úr póitískri lægð og slá riki í augu kjósenda, án þess að þurfa að mæta afleiðingum.
mbl.is Þekkt lögmannsstofa vinnur fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt grínið frá Árna

Þessi maður á ekki að vera grínast með svona alvarlegt mál, hvað ætlar hann að gera, keira færeyja í þrot líka.  þessi maður á bara að halda kjafti.  það er alveg merkilegt hvað íslendingar eru heimskir að hafa kosið þennan mann yfir sig, maður sem hefur verið rekinn og fangelsaður fyrir fjárdrátt myndi aldrei vera aftur ráðið til að hafa umsjón með peningum, hvaðþá hjá sama fyrirtæki.
mbl.is Árni Johnsen vill færeyska krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Færeyjar

Alltaf vissi ég að Færeyjar væru sannir vinir, ef ekki einu alvöru vinir okkar þá allavega þeir bestu.
mbl.is Siðferðileg skylda að hjálpa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Jói

Höfundur

Jóhann Hallgrímsson
Jóhann Hallgrímsson

Tölvunnarfræðingur, Háskólanum í Reykjavík það eru stafsetningavillur í öllum minum blogum vegna þess að ég er lesblindur.

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 503

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband